EN
Heim
Hafa samband
02:34|17. maí 2012

Félag verslunar og skrifstofufólks Akureyri og nágrenni

Orlofsuppbót samkvæmt samningum FVSA við SA og FA er kr. 21.000 fyrir árið 2012.  Hverjir eiga rétt á orlofsuppbót? Orlofsuppbót er föst tala og tekur

Orlofsuppbót

Orlofsuppbót samkvæmt samningum FVSA við SA og FA er kr. 21.000 fyrir árið 2012. 

Hverjir eiga rétt á orlofsuppbót?

Orlofsuppbót er föst tala og tekur ekki launabreytingum skv. öðrum ákvæðum kjarasamnings. Skattar og skyldur, félagsgjöld og lífeyrissjóður greiðast af orlofsuppbót. Orlof greiðist ekki ofan á orlofsuppbótina.

Uppbótin greiðist þann 1. júní miðað við starfshlutfall og starfstíma á orlofsárinu, öllum starfsmönnum sem verið hafa samfellt í starfi hjá atvinnurekanda í 12 vikur á síðustu 12 mánuðum m.v. 30. apríl eða eru í starfi fyrstu viku í  maí. 

Orlofsuppbót innifelur orlof, eru föst tala og tekur ekki breytingum skv. öðrum ákvæðum. Áunna orlofsuppbót skal gera upp samhliða starfslokum verði þau fyrir gjalddaga uppbótarinnar.

Ávinnsla orlofsuppbótar í fæðingarorlofi

Eftir eins árs starf hjá sama vinnuveitanda teljast fjarvistir vegna lögbundins fæðingarorlofs til starfstíma við útreikning orlofsuppbótar. Sama gildir ef kona þarf af öryggis­ástæðum að leggja niður störf á meðgöngutíma, sbr. reglugerð um ráðstafanir til þess að auka öryggi og heilbrigði á vinnustöðum fyrir konur sem eru þungaðar, hafa nýlega alið barn eða hafa barn á brjósti.

Frí gegn orlofsuppbót

Heimilt er með samkomulagi milli starfsmanns og vinnuveit­anda að fella niður eða lækka orlofsuppbót og veita samsvarandi frí í staðinn, sem tekur mið af launum hvers og eins. Frí þetta skal veita í heilum eða hálfum dögum

Könnun

Engin könnun skráð

Mynd augnabliksins

Teljari

Í dag: 2
Samtals: 217231

Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.13 2009 - Stefna ehf